Baráttan fyrir betri heimi

Avatar photoHalldór Lár

Baráttan fyrir betri heimi

Það er nokkuð sama hvar þú ferð, eða við hvern þú talar í dag, alls staðar bera heimsmálin á góma. Eðlilega stendur fólki ekki á sama um það róstur og óöryggi sem virðist nú ríkja í heiminum. Þau sem muna aftur undir miðja síðustu öld spyrja eðlilega hvað hafi gerst. Eftir heimsstyrjöld var mannkynið vongott um að nú myndum við loksins sjá mikilvægi þess að friður, framfarir og samkennd fengju framgang í mannheimum.

Það eru ekki einungis stríðsátök og þjóðaröryggismál sem valda fólki áhyggjum, heldur einnig allt annað ofbeldi sem virðist aðeins fara vaxandi. Ofan á allt þetta erum við svo enn að berjast við hungursneyðina, fátæktina, mannréttindabrot, óréttlæti og mismunun af öllu tagi. Og ef þetta er ekki nóg, þá er það umhverfisváin með tilheyrandi loftslagsbreytingum, sem hefur nú þegar ýtt undir eina mestu fólksflutninga veraldarsögunnar.

Við þurfum ekki að horfa út fyrir landsteinana til að finna fyrir breyttu ástandi, áhrifin ná yfir eylönd sem önnur lönd. Við finnum, sjáum og heyrum að eitthvað er ekki eins og það á að vera. En hvað er til ráða? Lagabreytingar og stefnumótandi aðgerðir yfirvalda geta og reyndar eiga að leiða til bætts ástands, en öll vitum við að það eitt og sér dugar ekki til. Við þurfum vitundarvakningu og hugarfarsbreytingu, sem færir okkur frið í eigin skinni og breytta afstöðu til samferðafólks okkar. En hvernig þá og í hvaða átt?

Kærleikur

Mörgum finnst, og kannski ekki að ástæðulausu, að kirkjan standi helst fyrir einhvers konar hegðunarbreytandi aðgerðum. Að kristin trú gangi út á það að losa okkur undan vondum verkum, syndinni, og gera okkur að betra fólki, að við það verði heimurinn betri. En það er misskilningur, þetta er hvorki boðskapur Jesú Krists né kirkjunnar.

Orðið synd, sem við gjarnan misskiljum, merkir að missa marks. Þegar við svo skoðum boðskap Jesú og kirkjunnar, eins og hann birtist í Biblíunni, þá sjáum við að allt gengur út á kærleik. Það er kærleikurinn sem er markmiðið sem allt miðar að. Við missum marks þegar við höfum ekki kærleik að leiðarljósi.

Breyting á heiminum til batnaðar fæst ekki nema að litlu leyti með tilskipunum, ef ekki fylgir vitundarvakning um mikilvægi kærleika og samhygðar.

Biblían og Jesús

Sumum kann að finnast það vonlaust verkefni að leita vitundarvakningar á blaðsíðum Biblíunnar, enda bókin bæði tyrfin og erfið yfirlestrar. Þess utan virðist nú Guð Gamla testamentisins ekki sú fyrirmynd sem til þarf. Er virkilega eitthvað þangað að sækja fyrir nútímamanninn, eitthvað sem getur bætt og fegrað mannlífið?

Flestir geta verið sammála um það að Jesús, eða allavega boðskapur hans, eigi erindi enn þann dag í dag. Hvort öll frásaga Biblíunnar eigi eitthvað erindi í nútímanum má hins vegar rökræða um. Staðreyndin er þó sú, að Jesús lifði ekki og starfaði í tómarúmi. Allt hans líf var svo nátengt frásögn Biblíunnar að nánast er útilokað að skilja erindi hans nema þekkja hana.

Ekta perlur er að finna í skeljum og allir gera sér grein fyrir því að skelin skiptir ekki máli, heldur perlan. Það er perlan sem er verðmætið en hún finnst ekki nema skelin sé opnuð. Biblían er eins og skel, hún hefur ekkert andlegt verðmæti í sjálfri sér ef engin perla finnst. Eina leiðin til að lesa og skilja boðskap Biblíunnar er að skoða hana í ljósi Jesú Krists og kærleika Guðs.

Kærleikurinn og betri heimur

Á frásögn Biblíunnar eitthvað erindi til okkar í dag og hvernig verður heimurinn betri vegna hennar? Það gerir hún á sama hátt og hún gerði í upphafi, ef við leyfum henni. Jesús sagði að allt orð Guðs hvíli á kærleikanum, á því að elska Guð og náungann eins og sjálfan þig. Frá upphafi til enda er þetta saga Jesú Krists og hvað segir hún okkur?

Hún segir okkur að öll tilvist okkar sé bundin kærleikanum. Kristur laðar mannkynið til sín og opinberar sanna samsömun þess, sem er kærleikur. Kærleikurinn gefur tilgang og dýpri merkingu í tilveruna. Hann setur heiminn í rökrétt samhengi.

Saga Jesú Krists segir okkur að Guðs ríki sé þegar komið á jörð og það muni vaxa og stækka með hverjum þeim einstaklingi sem skynjar andlegan veruleika þess. Hún segir okkur að allt mannkynið eigi sér von um bjarta framtíð í betri heimi. Í betri heimi kærleikans finnum við samhygð, réttlæti, frið, frelsi og mannúð. Allt það sem við þörfnumst svo mikið.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *