Bréf til Díognetusar

Avatar photoÁrni Már Jensson

Bréf til Díognetusar

Ítalski klerkurinn Thomas d’Ancona fór í námsferð til Constantinople árið 1436. Hann var m.a. að leita að áhugaverðum handritum sem snertu kristna trú og sögu. Constantinople var á þessum tíma miðstöð kristinnar trúar Roman-Býsanska heimsveldisins áður en Íslamska Ottoman veldið lagði borgina undir sig með hervaldi árið 1453. Í dag er borgin kölluð Istanbul í Tyrklandi. 

Constantinople var á þessum tíma höfuðból Grísku Réttrúnaðarkirkjunar og gengdi ámóta mikilvægu hlutverki í hinum kristna heimi og Vaticanið í Róm gerir í dag. Þar var mikið bókasafn og miðstöð kristinna fræða sem drógu að sér fróðleiksþyrsta menn frá öllum heimshornum. 

Einn rigningardag er Thomas d’Ancona var við biblíu-rannsóknir afréð hann að heimsækja fisksala nokkurn fyrir ábendingu kunningja síns. Fisksali þessi notaði gjarnan gömul dagblöð, tímarit og allskyns pappír úr dánarbúum sem hann fékk gefins til að vefja utan um fenginn fyrir viðskiptavini sína. Thomas fékk að fara inn fyrir búðarborðið hjá fisksalanum til að gramsa í pappírsstöflum sem þar voru. Þar rakst hann á vöndul sem innihélt þéttskrifaðan texta. Hann rýndi í textann sem vakti slíkan áhuga hjá honum að hann afréð að kaupa vöndulinn til frekari lestrar og rannsókna. 

Thomas, sem var ástríðufullur safnari, tók handritið með sér til Ancona á Ítalíu og varðveitti innan reglu Dóminikan munka þar. Lítið er vitað um afdrif Thomasar á Ítalíu eftir þetta annað en að hann hafði verið hluti af handritavakt ítalskra klerka, munka og húmanista sem lögðu grunninn að endurreisninni með því að safna forngrískum handritum til varðveislu áður en Constantinople féll í hendur Íslam.

En hvað var það við vöndulinn úr fiskbúðinni sem hreif Thomas svona?

Jú, vöndullinn innihélt bréf ritað af óþekktum höfundi sem kallaði sig Mathetes (lærisveinn) til viðtakanda sem hét Díognetus. Tilurð bréfsins var að frumlagi bréf sem Diognetus ritaði til Mathetes með spurningum sem honum lék forvitni á að fá svör við. 

Spurningarnar voru í megin atriðum þrjár:

  1. Af hverju hafna kristnir menn gyðinglegum siðum og einnig heiðnum guðum eldri trúarbragða?
  2. Hvað einkennir þessa sterku ást (kristilegan kærleika) og samheldni kristinna manna?
  3. Af hverju kom þessi trú svona seint fram í sögulegu samhengi fyrst hún var svona góð og fullkomin?

Bréfið sem Mathetes ritaði var svar í 12 köflum við þremur spurningum Díognetusar. Ýmsar getgátur eru um að Díognetus þessi hafi verið hugsuður og heimspekingur af ættum æðri embættismanna í Róm. Athygli hefur vakið að þekktur heimspekingur og myndlistarkennari Marcusar Árelísuar keisara Rómarveldis þess tíma hét sama nafni og bréfritarinn Díognetus. Hvort um sama Díognetus er að ræða er ekki vitað. Ritstíll bréfsins og orðanotkun bendir til að aldur þess sé 150-225 e.Kr sem gæti passað við keisaratíð Marcusar Árelíusar sem ríkti 161-180 e.Kr. Á þessu tímabili voru apologistar kristinna manna mjög virkir í skrifum undir dulnöfnum enda kristin trú talin villutrú og kristnir gjarnan ofsóttir fyrir trú sína. Auk framangreindra atriða voru kristnir álitnir ógn við Róm þar sem þeir höfnuðu því að biðja til heiðinna guða keisaraveldisins og að líta á keisarann sem helgan mann. Þó Díognetus hafi augljóslega verið heiðinn virtist hann fullur einlægni um að að skilja kristna menn og orsakirnar fyrir því hversu samheldnir og friðsamir þeir voru á sama tíma og þeim stóð ytri ógn vegna trúarinnar. Díognetusi var það t.a.m. hulin ráðgáta að skilja þá eðlishegðun að afneita ekki Kristi í skiptum fyrir að losna við pyntingar og aftöku. Hvers konar fólk valdi slík hlutskipti fyrir Guð sinn sem var þeim ekki einu sinni sýnilegur?

Skoðum hluta af svörum Mathetes með því að grípa niður í lauslega þýðingu úr útdrætti 5. og 6. kafla bréfsins, Epistle to Diognetus eða bréf til Díognetusar.

Mathetes svarar:

“Því að hinir kristnu greina sig hvorki frá öðrum mönnum að ættlandi, tungu né þeim siðum sem þeir fylgja. Þeir búa hvorki í eigin borgum, né mæla þeir á sérstaka tungu, og eigi lifa þeir lífi sem einkennist af neins konar sérvisku. Breytni sú sem þeir fylgja er hvorki upphugsuð af hyggjuviti né umráðum forvitinna manna; og eigi boða þeir, líkt og sumir, mannlegar kenningar. En þar sem þeir dveljast bæði í grískum og útlendum borgum, eftir því sem hlutskipti hvers og eins hefur ráðið, og fylgja siðum innfæddra hvað varðar klæðnað, fæðu og almenna breytni, miðla þeir á sama tíma kærleika og undraverðu líferni mörgum til eftirbreytni.

Kristnir dveljast og samlagast eigin ættjörðum, en þó aðeins eins og þeir séu frá öðrum heimi. Sem borgarar taka þeir þátt í öllu með öðrum, en lifa þó eins og þeir séu undir framandi lögmáli annarar tilveru. Sérhvert erlent land er þeim sem ættjörð, og sérhver fæðingarstaður sem framandi land. Þeir ganga í hjónaband eins og aðrir, þeir geta börn, en þeir bera ekki út afkvæmi sín né deyða. Þeir deila sameiginlegu borði, en ekki sameiginlegri rekkju utan hjónabands. Þeir eru í holdinu, en lifa ekki eftir holdinu. Þeir verja dögum sínum á jörðu, en eiga borgararétt í himnum. Þeir hlýða settum lögum manna, en upphefja um leið lögin til æðri eftirbreytni með lífi sínu. Þeir elska alla menn, en eru ofsóttir af flestum. Eðli þeirra er framandi öðrum og því gjarnan fordæmdir. Þeir eru líflátnir, en samt rísa þeir upp til lífs á ný. Þeir eru fátækir, en auðga samt marga. Þá skortir veraldlega hluti, en búa þó við alls nægtir. Þeir eru smánaðir, en eru í smán sinni dýrðlegir gerðir. Rætt er illa um þá, en þeir eru samt réttlættir. Þrátt fyrir smánun, blessa þeir þá sem smána þá. Þeir eru móðgaðir, en endurgjalda móðgunina með sæmd í garð gerandans. Þeir gjöra öðrum gott, en er refsað sem illvirkjum. Þegar þeim er refsað, fagna þeir líkt og þeir væru endurlífgaðir. Þeir eru sóttir heim af Gyðingum sem útlendingar og ofsóttir af Grikkjum. Þeir sem hata þá geta þó enga vitræna ástæðu gefið fyrir fjandskap sínum.

Það sem sálin er líkamanum, það eru hinir kristnu heiminum. Sálin er dreifð um alla limi líkamans, og hinir kristnu um borgir heimsins. Sálin býr í líkamanum, en er þó ekki af líkamanum og hinir kristnu búa í efnis-heiminum, en eru þó ekki af þeim heimi. Hin ósýnilega sál þeirra dvelur í sýnilegum líkama þeirra. Hinir kristnu dveljast í heiminum, en guðrækni þeirra varðveitist í dulúðlegri auðmýkt sálarinnar. Munaður og lystisemdir efnisheimsins virðast glíma gegn sál þeirra og jafnvel hata hana, þótt hún hafi ekkert rangt gjört. Hinn veraldlegi heimur heiðinna manna virðist hata hina kristnu, þótt þeir gjöri þeim engan órétt, eingöngu vegna þess að þeir sniðganga nautnir hans.

Sál hinna kristnu elskar efnisheiminn sem á móti virðist hata hana. Á sama hátt endurgjalda hinir kristnu hatur með kærleika. Sál þeirra er sem innilokuð í holdi líkamans sem á sama tíma varðveitir þó hreinleika hans. Þannig er hinum kristnu haldið í heiminum eins og í prísund á meðan þeir lifa í samhliða veruleika sem varðveita dyggðir hans. Hin ósýnilega sál þeirra dvelst í dauðlegum hýbílum þar sem hinir kristnu lifa sem útlendingar meðal forgengilegra hluta fullvissir um endanlega samstillingu við dýrð himnaríkis. Sál þeirra auðgast öguð í sulti og þorsta, og þeim fjölgar dag frá degi, þótt þeir lifi í lögmáli hóglífis og efnislegra takmarkana. Til svo andlegrar stöðu hefur Guð úthlutað þeim, að þeim leyfist ekki að yfirgefa hana.”

Kæri Díognetus, að loknum lestri þessum máttu vita hvað Guð ætlar þeim sem elska hann.

Höfundur er frumkvöðull og stofnandi Pax Vobis.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *