Í nafni Guðs föður og sonar og heilags anda. Guð geymi okkur og varðveiti á sálu og lífi þennan dag og alla tíma í Jesú nafni. Amen.
Drottinn, við þökkum þér fyrir orð eilífs lífs. Mörgu af því sem þú hefur sagt höfum við gleymt og látið fram hjá fara, en taktu þó ekki orð þitt frá okkur. Gef okkur anda þinn, sem áminnir okkur um allt sem þú hefur sagt og leiðir okkur í allan sannleika. Vek hjá okkur þorsta eftir orði þínu og hjálpa söfnuði þínum að halda sig við þig í náðar meðulum þínum. Gef okkur og öllum sem tilbiðja þig eindrægni og samhug og ver með okkur alla daga allt til enda veraldar.
Amen.
(G.Billing)


